Í haust hefur hópur fólks stundað nám í námsleiðinni Verkfærakistan – Sterkari starfsmaður.
Tilgangur námsleiðarinnar er að auka færni námsmanna til að takast á við breytingar, stuðla að jákvæðu viðhorfi námsmanna til starfa, nýjunga, upplýsingatækni, samskipta og símenntunar og gera þá eftirsóknarverðari starfsmenn. Í náminu er lögð mikil áhersla á að námsmenn læri að læra, efli sjálfstraust sitt og lífsleikni. Námsaðferðir eru aðallega byggðar á hagnýtum viðfangsefnum sem nýtast námsmönnum bæði í leik og starfi.