Sörubakstur með Sigrúnu Ellu
Sörubakstur er oft ómissandi hluti af fjölskylduhefðum jóla en þykir heldur flókinn og fylgir honum oft mikil vinna. Sigrún Ella Sigurðardóttir útskrifaðist sem konditor frá Zealand Buisness Collage í Ringsted, Danmörku árið 2017 og sem súkkulaðigerðarmeistari (e. chocolatier) frá Kold Collage í Óðinsvé, Danmörku árið 2019. Hún mun fara í gegnum allt ferlið sem viðkemur sörum eins og bakstri, kremi, fyllingum og temprun á súkkulaði en einnig mun hún kenna auðveldari aðferðir sem hægt verður að nýta sér í framtíðinni.
Skráning í síma 4880100 og á viska@viskave.is
Verð: 8.500 kr.
Staðsetning: Kennslueldhús Barnaskólans
Tími: Auglýst síðar