Lýsing
Kennsluáætlun
• Innra eftirlit, HACCP/GÁMES – tilgangur og það sem almennt starfsfólk þarf að hafa í huga varðandi gæðakerfi.
• Vöruþekking og fæðuflokkarnir –Innihald og samsetning fæðu. Fjallað um helstu vöruflokka og hvað er sérstakt við hvern þeirra.
• Geymsluþol – fjallað um geymsluþol, þurrvöru, kæli- og frystivöru. Jafnframt um læðir til að hámarka geymsluþol.
• Ofnæmi og óþol. Helstu ofnæmis og óþolsvaldar. Hver er munurinn á ofnæmi og óþoli.
• Þrif og sótthreinsun – þrifaaðgerðir, eftirlit með þrifum og sótthreinsun.
• Bakstur – brauð. Mætt í skólaeldhús og allir baka brauð og rúnstykki. Ef tími gefst til þá mun hópurinn einnig ákveða saman annan bakstur.
• Eldun – fiskur/kjöt. Einfaldar uppskriftir og ráð til að elda fisk og kjöt fyrir hópa. Allir taka þátt í að elda og borða síðan saman.
• Fræðsla um atvinnulífið – réttindi og skyldur (verkalýðsfélagið)
• Samstarf og samvinna á vinnustað
Leiðbeinandi: Elísa Viðarsdóttir næringar- og matvælafræðingur og Ragnheiður Sveinþórsdóttir umhverfis- og sjávarútvegsfræðingur og gæðastjóri hjá Iðunni seafood
Verð: 22.000 kr
Tími: 30 klst.
Dagsetning og staður: Þegar næg þátttaka næst. Kennt í gegnum Zoom
*ATH: Félagsmenn í Drífanda og Stavey geta sótt þetta námskeið sér að kostnaðarlausu!
Skráning er hjá Visku – fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja í síma 488 0100 og hjá viska@viskave.is.