Út er komin mynddiskur sem heitir Þitt Val – Þín Leið – Náms- og starfsráðgjöf fyrir sjómenn. Í þessari kynningu er vakin athygli sjómanna á ókeypis ráðgjöf sem þeim stendur til boða um nám og störf á öllum fræðslu- og símenntunarmiðstöðvum landsins. Jafnframt er þar hvatning til sjómanna um að huga að sínum starfsferli, staldra við og skoða námsmöguleika. Á disknum er að finna almennar upplýsingar út á hvað náms- og starfsráðgjöf gengur, viðtal við náms- og starfsráðgjafa og síðast en ekki síst þá eru viðtöl við sjómenn sem hafa farið í nám samhliða störfum sínum. Þar segja þeir frá sínum kringumstæðum, hvernig námið hafi gengið og stöðu sinni í dag.
Símenntunarmiðstöðvar um land allt hafa tekið það að sér að dreifa disknum í alla stærri báta og togara og er hugmyndin sú að sjómenn horfi á kynninguna á sjó úti. Einnig er stefnt að því að bjóða sjómönnum á smærri bátum á kynningu í landi. Sólrún Bergþórsdóttir náms- og starfsráðgjafi hjá Fræðslu- og símenntunarmiðstöðinni Visku í Vestmannaeyjum sá um útgáfuna en styrktaraðilar voru Fræðslumiðstöð Atvinnulífsins, Sjómennt, LÍÚ og Viska Vestm

